17.11.26 - 11:27
Kári Snorrason
Dregið í undankeppni EM í desember - Hvernig gæti riðill Íslands litið út?

Íslenska liðið fagnar marki í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Írland þarf á sigri að halda gegn Kósovó í kvöld til að fara í 2. styrkleikaflokk.

Mynd: EPA

Ísland er í 3. styrkleikaflokki, hægt er að smella á hlekkinn í fréttinni og hermt eftir drættinum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

EM 2028 fer fram í Englandi, Skotlandi, Wales og Írlandi.

Mynd: EPA

Íslenska liðið fagnar marki í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Með sigri í 4. riðli í C-deild Þjóðadeildarinnar tryggði Ísland sig í 3. styrkleikaflokk fyrir dráttinn fyrir undankeppni EM. Dregið verður í Belfast sunnudaginn 6. desember.
Af 54 liðum er ljóst í hvaða styrkleikaflokk 52 af þeim verða. Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í Írlandi taka á móti Kósovó í kvöld og þarf liðið á sigri að halda til þess að fara í styrkleikaflokk 2. Með jafntefli eða sigri fer Kósovó í 2. flokk og Írland í þann þriðja með Íslandi.

Undankeppnin hefst í mars á næsta ári og lýkur í nóvember 2027. Mótið fer fram í Englandi, Skotlandi, Wales og Írlandi. Tvö sæti eru frátekin fyrir gestgjafa sem tryggja sér ekki sæti í riðlakeppninni.
Þá ráðast önnur laus sæti í umspili í mars 2028 og á Ísland möguleika að fara í það umspil vegna sigurs í riðlinum í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Alls eru riðlarnir tólf og sex þeirra fjögurra liða og sex fimm liða. Ísland fór beint upp í B-deild og getur því lent í fjögurra eða fimm liða riðli. Liðin sem komast í undanúrslit Þjóðadeildarinnar fara í fjögurra liða riðla.
Hver fimm liða riðill má mest fá eitt lið sem tapar í átta liða úrslitum eða fer í umspil um sæti í A- eða B-deild.
Hér má herma eftir drættinum og sjá hvernig riðill Íslands gæti litið út.
Styrkleikaflokkur 1:
Belgía, Danmörk, England, Frakkland, Grikkland, Holland, Ítalía, Króatía, Noregur, Portúgal, Spánn, Þýskaland
Styrkleikaflokkur 2:
Austurríki, Bosnía og Hersegóvína, Norður-Írland, Serbía, Slóvenía, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Tyrkland, Ungverjaland, Wales og Írland eða Kósovó
Styrkleikaflokkur 3:
Ísland, Albanía, Georgía, Ísrael, Norður-Makedónía, Pólland, Rúmenía, Skotland, Slóvakía, Svartfjallaland, Úkraína og Írland eða Kósovó
Styrkleikaflokkur 4:
Armenía, Búlgaría, Eistland, Finnland, Færeyjar, Hvíta-Rússland, Kasakstan, Kýpur, Lettland, Lúxemborg, Moldóva, San Marínó
Styrkleikaflokkur 5:
Andorra, Aserbaídsjan, Gíbraltar, Liechtenstein, Litháen, Malta