17.11.26 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fótboltaævintýri Emils haldið á Ítalíu fjórða árið í röð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Aðsend

Mynd: Aðsend

Mynd: Aðsend

Mynd: Aðsend

Mynd: Aðsend

Mynd: Aðsend

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrrum landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson heldur áfram að byggja upp skemmtilega fótboltastarfsemi á Ítalíu en næsta sumar verður fjórða sumarið sem hann býður ungum íslenskum fótboltaiðkendum í fótboltaævintýri á gömlu heimaslóðunum í Verona.
Verkefnið hefur notið mikilla vinsælda og verða fjögur einstaklingsnámskeið í boði sumarið 2027, þrjú fyrir stráka og eitt fyrir stelpur. Skráning er þegar hafin.

Námskeiðin eru á vegum EH Academy og fara fram við Gardavatn á Ítalíu, skammt frá Verona þar sem Emil lék með Hellas Verona í sex ár. Krakkarnir dvelja þar í eina viku, æfa við frábærar aðstæður og fá að kynnast ítölskum fótbolta og menningu.
„Þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel,“ segir Emil í samtali við Fótbolta.net.
Hámark 30 krakkar geta verið í hverjum hópi og er lögð áhersla á að allir fái persónulega upplifun. Emil er sjálfur með krökkunum allan tímann og tekur að sér mörg hlutverk á meðan á dvölinni stendur.
„Ég vil ekki hafa hópana of stóra, því allir eiga að fá athygli. Ég er með þeim allan tímann og er í raun skólastjóri, fararstjóri og þjálfari. Stundum er ég eiginlega líka leikmaður, því mér finnst skemmtilegast að spila með þeim," segir Emil léttur.
Auk æfinganna er dagskráin þétt skipuð. Farið er meðal annars í skemmtigarðinn Gardaland og hjólaferð um Gardavatnið. Þá er boðið upp á grillveislu og ýmsa aðra afþreyingu.
„Markmiðið er fyrst og fremst að krakkarnir fái geggjaða upplifun, fái að æfa í viku undir handleiðslu ítalskra þjálfara og kynnist ítalskri menningu. Ég vil gefa þeim eins mikið og ég get á þessari einu viku, hvort sem það er fótboltalega eða eitthvað annað sem þau geta nýtt sér í framtíðinni.“
Emil segist jafnframt vera með kvöldfundi með krökkunum þar sem hann deilir reynslu sinni úr atvinnumennskunni, miðlar þeim mikilvægum lærdómi og hvetur þau til að fylgja draumum sínum.
„Á þessum kvöldfundum ræðum við ýmislegt sem ég hef lært á mínum ferli, bæði innan vallar sem utan. Mig langar að miðla reynslu minni, hvetja krakkana áfram og vonandi veita þeim innblástur sem nýtist þeim í framtíðinni. Fyrir mér snýst þetta fyrst og fremst um að gefa til baka og sjá til þess að krakkarnir fari heim með eitthvað dýrmætt í farteskinu.“
Getur opnað dyr
Námskeiðin geta jafnframt opnað dyr fyrir unga leikmenn. Eftir fyrsta árið fengu tveir leikmenn úr Breiðabliki boð um að koma út til reynslu hjá Hellas Verona. Emil segir þó að það sé ekki aðalmarkmiðið með ferðunum.
„Þetta getur opnað dyr, þótt það sé ekki aðalatriðið. Markmiðið er bara að krakkarnir fái geggjaða upplifun og komi reynslunni ríkari heim.“
Emil hefur haldið góðum tengslum við Hellas Verona eftir að atvinnumannaferlinum lauk. Nýverið var honum boðið að verða einn af þremur sendiherrum félagsins, ásamt fyrrum leikmönnunum Luca Toni og Giampaolo Pazzini.
„Það var mikill heiður fyrir mig. Ég er í mjög góðu sambandi við félagið og fer að minnsta kosti fjórum sinnum á ári til Verona í ýmis verkefni. Þeir hjálpa mér líka með þjálfara á sumrin og ýmislegt annað,“ segir Emil sem spilaði með Hellas Verona frá 2011 til 2016.
Býður einnig upp á æfingaferðir fyrir lið
Samhliða einstaklingsnámskeiðunum hefur Emil, í samstarfi við Pursue Iceland, einnig sett upp æfingaferðir fyrir íslensk félagslið til Ítalíu. Nú er þegar farið að bjóða upp á ferðir fyrir sumarið 2027.
Ferðirnar eru ætlaðar 2., 3. og 4. flokki karla og kvenna og standa yfir í átta daga og sjö nætur. Dvalið er á Veronello Resort á Ítalíu, þar sem öll æfingaaðstaða er við hótelið. Flogið er beint til Mílanó og boðið er upp á ferðir í maí, júní, júlí og ágúst.
Emil tekur þátt í æfingum og þjálfun og leiðbeinir hópunum um svæðið sem hann þekkir vel frá árum sínum í ítölsku úrvalsdeildinni.
Hægt er að nálgast upplýsingar um fótboltaævintýri Emils á Ítalíu með því að smella hérna.
Hægt er að fá fleiri upplýsingar um liðaferðirnar með því að smella hérna