17.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool horfir til frönsku bikarmeistaranna

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Liverpool er komið í baráttuna um franska miðvörðinn Ismaelo Ganiou, sem leikur með bikarmeisturum Lens í Frakklandi.
Ganiou er 21 árs og átti frábært tímabil með Lens, sem hafnaði í öðru sæti frönsku deildarinnar eftir harða titilbaráttu við Paris Saint-Germain og vann þar að auki bikarinn í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Pierre Sage, sem þjálfaði Ganiou hjá Lens, reyndi að fá hann með sér til Crystal Palace í sumar en Frakkinn hafnaði því tækifæri og ákvað að vera áfram hjá félaginu.
Hann framlengdi í kjölfarið samning sinn við Lens til ársins 2030, en er nú tilbúinn að yfirgefa félagið eftir skelfilega byrjun þess á tímabilinu.
Samkvæmt FootyInsider er Liverpool nú komið í baráttuna um Ganiou, en AC Milan, Chelsea, Tottenham, Newcastle og PSG eru einnig sögð hafa áhuga á miðverðinum.