17.11.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon
Man Utd endurvekur áhuga á Hall - Chelsea vill Börsunga

Lewis Hall í leik með Newcastle.

Mynd: EPA

Luka Vuskovic í leik með Brighton.

Mynd: EPA

Leonard Prescott, efnilegur markvörður Bayern.

Mynd: EPA

Bilal El Khannouss.

Mynd: EPA

Balogun til Ítalíu?

Mynd: EPA

Lewis Hall í leik með Newcastle.

Mynd: EPA

Manchester United gæti átt í erfiðleikum með að fá varnarmanninn Lewis Hall frá Newcastle, miðjumaðurinn Martin Zubimendi hjá Arsenal veltir framtíð sinni fyrir sér og Chelsea hyggst reyna að krækja í tvo leikmenn frá Barcelona. Hér er slúðrið.
Newcastle mun ekki taka við tilboðum í Lewis Hall í janúar (22) en Manchester United gæti hugsanlega endurvakið áhuga sinn á þessum enska vinstri bakverði. (Telegraph)
Miðjumaður Arsenal, Martin Zubimendi (27), er opinn fyrir því að yfirgefa félagið vegna skorts á tækifærum. Atletico Madrid og Chelsea hafa sýnt Spánverjanum áhuga. (AS)
Chelsea hyggst reyna að krækja í tvo leikmenn Barcelona í janúar: spænska miðjumanninn Fermin Lopez (23) og franska varnarmanninn Jules Kounde (28). Chelsea hyggst freista katalónska félagsins með 150 milljóna punda tilboði. (El Nacional)
Senegalski kantmaðurinn Ismaila Sarr (28) hjá Crystal Palace heldur öllum dyrum opnum fyrir janúargluggann en lítið hefur þokast áfram í viðræðum um nýjan samning við félagið. (Football Insider)
Real Madrid hefur fylgst grannt með Brighton á þessu tímabili. Meðal þeirra leikmanna sem vakið hafa athygli þeirra eru króatíski varnarmaðurinn Luka Vuskovic (19) og spænski miðjumaðurinn Chema Andres (21). (Teamtalk)
Allt bendir til þess að markvörðurinn stórefnilegi Leonard Prescott (17) yfirgefi Bayern München eftir að samningaviðræður sigldu í strand. Chelsea, Arsenal, Brighton og Aston Villa eru meðal þeirra félaga sem hafa sýnt þessum þýska unglingalandsliðsmanni, sem fæddur er í New York, áhuga. (Sky Sports Þýskalandi)
Leeds hefur leitað til Stuttgart þar sem félagið hefur áhuga á að ganga frá kaupum á marokkóska miðjumanninum Bilal El Khannouss (22) í janúar. (Teamtalk)
Barcelona hefur enn áhuga á króatíska varnarmanninum Josko Gvardiol (24) hjá Manchester City en telur þó ólíklegt að hægt verði að ganga frá kaupum á honum. (AS)
Newcastle býr sig nú undir samkeppni við Liverpool og fleiri úrvalsdeildarfélög um að tryggja sér Ismaelo Ganiou (21), franskan varnarmann Lens. (Football Insider)
Manchester United hafði ekki aðeins samband við Mauricio Pochettino í leit sinni að eftirmanni Michael Carrick, heldur ræddu þeir einnig við Didier Deschamps, fyrrum landsliðsþjálfara Frakklands. (Talksport)
Forráðamenn Manchester United ræddu einnig um Cesc Fabregas, stjóra Como, en þeir gengu þó ekki svo langt að setja sig formlega í samband við þennan fyrrum miðjumann Arsenal. (The Athletic)
Bandaríski sóknarmaðurinn Folarin Balogun (25), sem leikur með Mónakó, er í viðræðum við AC Milan og Juventus um möguleg félagaskipti í janúar. Balogun var nálægt því að ganga til liðs við Everton á lokadegi sumargluggans en ekkert varð úr þeim skiptum. (Calciomercato)
Tottenham er reiðubúið að láta Richarlison (29) fara í janúarglugganum fyrir upphæð á bilinu 10 til 15 milljónir punda. Tyrkneska félagið Trabzonspor hefur sýnt áhuga á að fá brasilíska sóknarmanninn. (Teamtalk)