Fotbolti.net
17.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

McKennie um Man Utd: Kannski mun það gerast

McKennie um Man Utd: Kannski mun það gerast
Canon

Mynd: EPA

Nokkrir leikmenn bandaríska landsliðsins hafa verið orðaðir við Manchester United í kjölfar þess að Mauricio Pochettino tók við liðinu. Weston McKennie er einn þeirra og hefur nú tjáð sig um orðróminn.
Útilokar ekki að kaupa bandaríska leikmenn til Man Utd
TENGT EFNI

Útilokar ekki að kaupa bandaríska leikmenn til Man Utd

Pochettino hefur náð ágætis árangri með bandaríska landsliðið en hann mun stýra því í síðasta sinn í kvöld áður en hann tekur við United.

Fjölmiðlar hafa velt því fyrir sér hvort Pochettino muni taka nokkra bandaríska landsliðsmenn með sér til United og McKennie útilokar ekki þann möguleika.

„Það er möguleiki. Við erum með marga stráka í okkar liði sem munu færa sig um set á næsta árinu. Það var alltaf von á orðrómum, en maður veit aldrei hvað þjálfarinn er að hugsa.“

„En maður sér samt stráka hér og verið að ræða um að þeir séu að fara til Manchester United og kannski gerist það,“
sagði McKennie við blaðamanninn Tom Bogert.

McKennie leikur með Juventus á Ítalíu en Tyler Adams, leikmaður Bournemouth, hefur einnig verið orðaður við United. Pochettino hefur sjálfur ekki útilokað þann möguleika, en telur ekki rétta tímann til að ræða það á þessari stundu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.