Fotbolti.net
17.11.26 - 10:02
Kári Snorrason

Meðaleinkunnir Íslands - Hver var bestur í Þjóðadeildinni?

Komið frábærlega í markið í fjarveru Elíasar.

Komið frábærlega í markið í fjarveru Elíasar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland vann í gær sannfærandi 3-0 sigur á Lúxemborg og þar með tryggði liðið sér sigur í riðlinum í C-deild Þjóðadeildarinnar. Þar með er ljóst að liðið mun leika í B-deild í næstu keppni.

Ísland vann riðilinn með 14 stig, hafandi unnið fjóra leiki og gert tvö jafntefli. Íslenska liðið fékk aðeins á sig eitt mark í riðlinum og skoraði fimmtán.

Hákon Rafn Valdimarsson og Orri Steinn Óskarsson eru með hæstu meðaleinkunnina. Orri skoraði fjögur og lagði upp þrjú í Þjóðadeildinni. Hann var alls valinn maður leiksins þrisvar.

Hákon hefur komið frábærlega í markið í fjarveru Elíasar og má ætla að hann hafi gert stöðuna að sinni. Hann var valinn maður leiksins í báðum leikjunum gegn Eistlandi.

Hér að neðan má sjá meðaleinkunnir leikmanna í Þjóðadeildinni út frá einkunnargjöf Fótbolta.net.
Einkunnir Íslands:
Hákon Rafn Valdimarsson: 7.5
Orri Steinn Óskarsson: 7.5
Andri Lucas Guðjohnsen: 7.0
Hákon Arnar Haraldsson: 7.0
Ísak Bergmann Jóhannesson: 7.0
Gylfi Þór Sigurðsson: 6.4
Logi Tómasson: 6.4
Mikael Egill Ellertsson: 6.4
Hörður Björgvin Magnússon: 6.4
Guðlaugur Victor Pálsson: 6.3
Daníel Leó Grétarsson: 6.2

*Á listanum eru leikmenn sem fengu einkunnir fyrir 4 leiki eða fleiri.
*Spila þarf a.m.k. 20 mín í leik til að fá einkunn

Einkunn fyrir þrjá leiki:
Brynjólfur Andersen Willumsson: 7.0
Stefán Teitur Þórðarson: 6.0
Aron Einar Gunnarsson: 6.0
Jón Dagur Þorsteinsson: 6.0
Arnór Sigurðsson: 5.5

Einkunn fyrir tvo leiki:
Mikael Neville Anderson: 7.0

Einkunn fyrir einn leik:
Hjörtur Hermannsson: 7.0
Kristall Máni Ingason: 6.5
Albert Guðmundsson: 6.0
Andri Fannar Baldursson: 6.0
Kristian Hlynsson: 6.0
Ísak Snær Þorvaldsson: 3.0
Fyrirliðinn skoraði fjögur og lagði upp þrjú.

Fyrirliðinn skoraði fjögur og lagði upp þrjú.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Getur ekki hætt að skora.

Getur ekki hætt að skora.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.