Fotbolti.net
17.11.26 - 14:28
Kári Snorrason

Pétur Péturs: Hrifnastur af vinnusemi Orra

Orri hefur skorað tíu mörk í 20 leikjum með félags- og landsliði á tímabilinu.

Orri hefur skorað tíu mörk í 20 leikjum með félags- og landsliði á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Hlutabréfin í landsliðsfyrirliðanum Orra Steini Óskarssyni eru há um þessar mundir en þessi 22 ára gamli framherji hefur verið iðinn við kolann í bæði landsliðinu og félagsliði sínu Real Sociedad síðustu vikur.

Hann hefur verið orðaður við skref í ensku úrvalsdeildina, Manchester United er meðal þeirra enskra félaga sem hefur verið orðað við Orra.

Baskneski miðillinn Noticias de Gipuzkoa fjallaði á dögunum ítarlega um Orra og ræddi meðal annars við Pétur Pétursson og spurði hann út í landsliðsfyrirliðann.
Orri orðaður við Man Utd - Verðmiðinn sagður yfir 20 milljónir evra
TENGT EFNI

Orri orðaður við Man Utd - Verðmiðinn sagður yfir 20 milljónir evra

„Orri stendur sig mjög vel hjá Real Sociedad. Hann skorar mörk, sem er auðvitað mjög mikilvægt fyrir framherja, en það sem ég er hrifnastur af við er vinnusemin. Hann er alltaf á ferðinni, hleypur mikið, reynir að bjóða sig í sendingar og leggur hart að sér fyrir liðið. Hann hugsar um fleira en að skora. Hann kemur með fleira en mörk að borðinu og gerir allt sem hann getur til að hjálpa liðinu að vinna,“ sagði Pétur í samtali við miðilinn.

Pétur er einn besti framherji sem Ísland hefur átt en hann lék með Hercules á Spáni á níunda áratugnum. Hann telur að Orri muni ná enn lengra og segir það lykilatriði fyrir framherja að kunna að takast á við mótlæti.

„Það skiptast á skin og skúrir í fótboltanum og allir leikmenn ganga í gegnum tímabil þar sem hlutirnir ganga ekki eins og þeir vilja. En ég hef aldrei verið mikið fyrir að velta mér upp úr erfiðleikunum eða horfa of mikið til baka. Maður þarf að halda áfram og treysta því að fyrr eða síðar fari hlutirnir að ganga upp,“ sagði Pétur jafnframt.

Heimild: Noticias de Gipuzkoa

Pétur Pétursson.

Pétur Pétursson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.