Fotbolti.net
17.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Porro vill yfirgefa Tottenham fyrir Barcelona

Porro vill yfirgefa Tottenham fyrir Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Spænski bakvörðurinn Pedro Porro vill ganga til liðs við Barcelona næsta sumar en þetta herma heimildir spænska vefmiðilsins Sport.
Tottenham-maðurinn er farinn að hugsa sér til hreyfings, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa framlengt samning sinn við enska félagið.

Hann dreymir um að snúa aftur heim til Spánar og samkvæmt Sport er Barcelona honum efst í huga.

Hansi Flick, þjálfari Barcelona, er sagður ólmur í að fá Porro til félagsins og eru stjórnarmenn Börsunga sama sinnis.

Tottenham er talið vilja fá að minnsta kosti 60 milljónir punda fyrir leikmanninn, en Barcelona metur hann á aðeins um 42 milljónir punda og vonast því til að geta samið um lægra verð.

Porro, sem er 27 ára, hefur verið hjá Tottenham frá árinu 2023 þegar hann kom frá Sporting Lissabon. Þar áður lék hann með Manchester City og Girona.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.