17.11.26 - 14:49
Kári Snorrason
Rooney segist hafa íhugað sjálfsvíg á hátindi ferilsins

Opnaði sig í hlaðvarpinu Life at the Midpoint.

Mynd: EPA

Segist hafa liðið verst á hátindi ferilsins.

Wayne Rooney segist hafa íhugað sjálfsvíg þegar hann var upp á sitt besta hjá Manchester United. Hann sagði frá erfiðleikum sínum utan vallar í hlaðvarpinu Life at the Midpoint.
Hann segist hafa átt í erfiðleikjum með drykkju og sagði þegar hann neytti áfengis hafi hann lokað sig inni í tvo daga og ekkert annað hafi komist að.

„Mér leið alltaf vel á fótboltavellinum en ég átti í miklum erfiðleikum með allt annað. Mér leið orðið svo illa að ég fór að íhuga sjálfsvíg. Ég vildi bara ekki vera innan um fólk. Ég vildi ekki sjá fólk úti á götu og ég vildi ekki fara inn í búðir,“ sagði Rooney.
Rooney var á þessum tíma nýgiftur og sagði sjálfur líklega hafa verið upp á sitt besta sem leikmaður á þessum tíma.
„Þetta hefði átt að vera hamingjuríkasti tími lífs míns en svo var ekki. Þetta var líklega erfiðasti tíminn vegna þess hve eigingjarnt ég hagaði mér,“ sagði hann en hjónin giftust sumarið 2008.
Þá sagði Rooney jafnframt hafa falið líðan sína en leitaði hjálpar eftir að hafa rætt við eiginkonu sína og móður. Hann segist vera á betri stað í dag en hann hefur lagt flöskuna á hilluna.