17.11.26 - 12:25
Kári Snorrason
Segir ómetanlegt hvernig Aron hafi tekið sig að sér sem ungan fyrirliða

Aron heiðraður eftir leik í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Jafnaði leikjamet Birkis Bjarnasonar í kveðjuleiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson fór fögrum orðum um Aron Einar Gunnarsson eftir kveðjuleik hans með landsliðinu í gær.
Aron Einar Gunnarsson var fyrirliði landsliðsins til margra ára og var sjálfur gerður að fyrirliða landsliðsins 23 ára. Orri Steinn var gerður að fyrirliða liðsins 20 ára og var hann spurður hvernig Aron hefði hjálpað honum sem ungum landsliðsfyrirliða.

TENGT EFNI
Aron Einar: Greip þessa treyju árið 2008 og ætlaði aldrei að gefa hana frá mér
„Það er ómetanlegt hvernig hann er sem persóna, fótboltamaður og leiðtogi. Hann tók mig undir arminn í byrjun sem fyrirliði. Ég er mjög þakklátur fyrir það. Sem skiptir mestu máli er hvernig hann er sem manneskja, hvernig hann hugsar um alla og gefur af sér utan vallar.
Það heldur í við mann, maður tekur mest eftir því. Það er auðvitað frábært einkenni og ég er mjög þakklátur fyrir hann og hvað hann hefur gert fyrir okkur,“ sagði Orri í samtali við Fótbolta.net eftir 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg í gær.