Fotbolti.net
17.11.26 - 11:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Svo sannarlega einn af lykilmönnum mínum"

Mikael Egill í leiknum gegn Lúxemborg í gær.

Mikael Egill í leiknum gegn Lúxemborg í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Mikael Egill Ellertsson er leikmaður sem hefur farið mjög vaxandi með íslenska landsliðinu á undanförnum árum.

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, var í gær spurður út í þróunina á Mikael Agli á fréttamannafundi eftir 3-0 sigur gegn Lúxemborg.
„Hann er ótrúlega kraftmikill og núna eru mörkin líka farin að koma inn í hans leik. Hann gefur okkur hrikalega mikið. Stundum er hann jafnvel of kraftmikill. Hann er búinn að koma hlaupunum af stað en boltinn kemur aðeins fyrir aftan hann. Næsta skref er að tímasetja hlaupin betur og vera aðeins yfirvegaðri þegar hann fær tækifæri," sagði Arnar.

Mikael fór ungur að árum til Ítalíu þar sem hann hefur þurft að vinna heldur betur fyrir hlutunum.

„Hann er á mjög góðri leið. Hann sýndi gríðarlegan karakter ungur að árum á Ítalíu. Fyrstu tvö til þrjú árin þar voru ekkert létt fyrir hann en hann gafst ekki upp, fór ekki heim heldur hélt áfram að leggja á sig vinnuna. Það sama má segja um fyrstu árin hans í landsliðinu. Hann var ekki tekinn mjög alvarlega í byrjun en er núna svo sannarlega einn af lykilmönnum mínum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.