17.11.26 - 22:08
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin: Írland í umspil um sæti í A-deild

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það voru spilaðir sex leikir á sama tíma í B-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld. Þjóðir mættust í lokaumferð riðlakeppninnar og úr varð mikið fjör.
Lærlingar Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu fóru létt með tíu andstæðinga í liði Kósovó og tryggðu sér þar með 2. sæti síns riðils.
Kreshnik Hajrizi, leikmaður Kósovó, fékk dæmda vítaspyrnu á sig og beint rautt spjald fyrir að bjarga viljandi með hendi á marklínu. Troy Parrott skoraði af vítapunktinum og tvöfaldaði hann svo forystuna með marki úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks.
Jack Moylan innsiglaði 3-0 sigur en Írar hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk gegn tíu andstæðingum.
Í næsta landsleikjahléi, sem verður í mars, munu Írar spila umspilsleiki í tilraun til að komast upp í A-deildina.
Graham Potter tefldi þá fram tilraunakenndu byrjunarliði er Svíþjóð, sem var búið að vinna sinn riðil, heimsótti Pólland. Viktor Gyökeres var í byrjunarliðinu og gaf stoðsendingu en lokatölur urðu 1-1.
Svíar fara upp í A-deild á meðan Pólvejrar enda í þriðja sæti riðilsins.
Norður-Írar tryggðu sig þá upp í A-deild með jafntefli gegn Ungverjalandi, sem endar í öðru sæti - einu stigi á eftir Norður-Írum.
Justin Devenny, leikmaður Stoke City, skoraði mark Norður-Íra í leiknum en byrjunarliðið skartaði tveimur leikmönnum úr ensku úrvalsdeildinni, átta úr Championship og einum úr League One.
Dominik Szoboszlai og Milos Kerkez voru í byrjunarliði Ungverja en tókst ekki að skora í 1-1 jafntefli.
Ísrael er þá fallið niður í C-deildina eftir jafntefli við Austurríki, sem fer beint upp í A-deild.
Úkraína vann botnslag gegn Georgíu sem er án Khvicha Kvaratskhelia og hafði Bosnía betur gegn Rúmeníu sem endar á botni síns riðils.
Bosnia Herzegovina 2 - 1 Romania
0-1 Daniel Birligea ('6 )
1-1 Benjamin Tahirovic ('44 )
2-1 Esmir Bajraktarevic ('82 )
Hungary 1 - 1 Northern Ireland
1-0 Barnabas Varga ('35 )
1-1 Justin Devenny ('65 )
Ireland 3 - 0 Kosovo
1-0 Troy Parrott ('28 , víti)
2-0 Troy Parrott ('50 , víti)
3-0 Jack Moylan ('75 )
Rautt spjald: Kreshnik Hajrizi, Kosovo ('26)
Israel 1 - 1 Austria
1-0 ('36 )
1-1 Sasa Kalajdzic ('62 )
Poland 1 - 1 Sweden
1-0 Adrian Benedyczak ('16 )
1-1 Hugo Larsson ('24 )
Ukraine 1 - 0 Georgia
1-0 Danylo Sikan ('1 )
Rautt spjald: Luka Lochoshvili, Georgia ('90)