17.11.26 - 15:09
Kári Snorrason
U19: Ísland úr leik eftir tap í vítaspyrnukeppni

Byrjunarliðið.

Mynd: KSÍ

Byrjunarliðið.

Mynd: KSÍ

U19 landslið karla er úr leik í undankeppni fyrir EM 2027 eftir að hafa tapað í vítaspyrnukeppni fyrir Wales fyrr í dag.
Liðin gerðu 1-1 jafntefli í venjulegum leiktíma og var það Alexander Máni Guðjónsson sem skoraði mark Íslands.
Þar sem liðin voru jöfn að öllu leyti i 3.-4. sæti riðilsins þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni til að útkljá hvort liðið myndi halda sæti sínu í A-deild undankeppninnar og komast áfram í síðustu umferðina.

Svekkjandi niðurstaða fyrir U19 liðið sem hóf undankeppnina af miklum krafti hafandi komið til baka og sótt jafntefli gegn Evrópumeisturum Spánar í fyrstu umferð.
Í öðrum leik liðsins tapaði Ísland á móti Finnum og þurfti liðið á sigri að halda í dag til þess að komast áfram í næstu umferð.