Fotbolti.net
17.11.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Vilja halda úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar

Englendingar vilja vera gestgjafar.

Englendingar vilja vera gestgjafar.

Canon

Mynd: EPA

England hefur lýst yfir áhuga á að halda úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar sem fram fer í júní á næsta ári.

Undanúrslitaleikirnir og úrslitaleikurinn munu fara fram í einu landi, eins og hefð er fyrir. Einnig bronsleikurinn.
Auk Englands er talið að Spánn og Frakkland hafi einnig haft samband við UEFA til að lýsa yfir áhuga sínum á að halda úrslitakeppnina.

Frá því að Þjóðadeildin hófst árið 2019 hafa Portúgal, Ítalía, Holland og Þýskaland hingað til verið gestgjafar úrslitakeppninnar.

Dregið verður í 8-liða úrslit á föstudaginn en þau verða spiluð í mars áður en úrslitakeppnin fer fram í júní.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.