Marten Leon Jóhannsson er 15 ára markmaður sem skrifaði undir sinn fyrsta samning við HK fyrr á þessu ári.
Hann er undir smásjá danska stórliðsins Bröndby og samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru miklar líkur á því að hann verði keyptur til félagsins á næsta ári.
Marten Leon er hávaxinn og líka góður með boltann í fótunum. Hann lék með 3. flokki HK í sumar og á að baki sex unglingalandsleiki.

Hann er ekki orðinn 16 ára og því getur Bröndby ekki keypt hann strax. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur ekki borist formlegt tilboð í markmanninn en áhugi Bröndby er mikill og hefur hann farið til æfinga hjá félaginu.
Fótbolti.net fjallaði um það í maí að Marten hefði æft með aðalliði Bröndby, það var í annað sinn sem hann fór til Bröndby á reynslu.
Athugasemdir