Amorim með áhugaverða klásúlu - Man City sýnir Mainoo áhuga - Juve vill Silva - Liverpool gæti gert tilboð í Araujo
   lau 18. janúar 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Real Madrid tekur á móti Sevilla
Það eru fjórir leikir á dagskrá í spænska boltanum í dag og byrjar boltinn að rúlla í hádeginu þegar Levante mætir Alaves.

Stórleikur helgarinnar er næstur þar á eftir. Þar eigast Real Madrid og Sevilla við í toppbaráttuslag þar sem fimm stig skilja liðin að.

Real Madrid hefur unnið tólf síðustu heimaleiki gegn Sevilla. Sevilla hefur ekki náð í stig á Santiago Bernabeu síðan 7. desember 2008.

Osasuna og Real Valladolid eigast svo við áður en Eibar tekur á móti Atletico Madrid í síðasta leik dagsins.

Eibar er fjórum stigum fyrir ofan fallsæti á meðan Atletico er búið að vinna þrjá deildarleiki í röð og er fimm stigum frá toppnum.

Leikir dagsins:
12:00 Levante - Alaves
15:00 Real Madrid - Sevilla (Stöð 2 Sport)
17:30 Osasuna - Valladolid
20:00 Eibar - Atletico Madrid (Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 4 4 0 0 8 2 +6 12
2 Barcelona 4 3 1 0 13 3 +10 10
3 Espanyol 4 3 1 0 8 5 +3 10
4 Athletic 4 3 0 1 6 4 +2 9
5 Getafe 4 3 0 1 6 4 +2 9
6 Villarreal 4 2 1 1 8 3 +5 7
7 Alaves 4 2 1 1 4 3 +1 7
8 Elche 4 1 3 0 6 4 +2 6
9 Betis 5 1 3 1 6 6 0 6
10 Osasuna 4 2 0 2 3 2 +1 6
11 Atletico Madrid 4 1 2 1 5 4 +1 5
12 Celta 5 0 4 1 4 6 -2 4
13 Sevilla 4 1 1 2 7 7 0 4
14 Vallecano 4 1 1 2 4 5 -1 4
15 Valencia 4 1 1 2 4 8 -4 4
16 Oviedo 4 1 0 3 1 7 -6 3
17 Real Sociedad 4 0 2 2 4 6 -2 2
18 Levante 4 0 1 3 5 9 -4 1
19 Mallorca 4 0 1 3 4 9 -5 1
20 Girona 4 0 1 3 2 11 -9 1
Athugasemdir
banner