Fotbolti.net
18.01.22 - 12:10
Elvar Geir Magnússon

Telegraph: Everton mun funda með Rooney og Lampard

Frank Lampard, fyrrum stjóri Chelsea.

Frank Lampard, fyrrum stjóri Chelsea.

Canon

Mynd: Getty Images

Telegraph segir að Everton ætli að funda með Wayne Rooney og Frank Lampard en félagið er í stjóraleit eftir að Rafa Benítez var rekinn.

Belgíska fótboltasambandið neitar að losa Roberto Martínez og Everton fær því líklega ekki þann kost sem var efstur á blaði.
Farhad Moshiri, eigandi Everton, er sagður aðdáandi Jose Mourinho og var sá portúgalski sagður á blaði. Ítalskir fjölmiðlar segja hinsvegar að Mourinho, sem er þjálfari Roma, hafi látið Everton vita að hann hafi ekki áhuga á starfinu.

Everton hefur farið í gegnum fimm stjóraskipti á síðustu sex árum en liðið er sem stendur í sextánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Rooney er uppalinn hjá félaginu og er nú stjóri Derby County sem á í miklum fjárhagserfiðleikum. Þrátt fyrir ómögulegt ástand og stigafrádrátt hefur hann náð að halda liðinu á floti í Championship-deildinni. Það er með 14 stig en 21 stig hefur verið dregið af liðinu.

Lampard er einmitt fyrrum stjóri Chelsea en hann tók síðan við Chelsea og stýrði liðinu frá 2019 og þar til í fyrra þegar hann var látinn taka pokann sinn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Wayne Rooney.

Wayne Rooney.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.