Fotbolti.net
18.02.21 - 13:54
Elvar Geir Magnússon

Jói Berg í myndatöku

Jói Berg í myndatöku
Canon

Mynd: Getty Images

Sean Dyche, stjóri Burnley, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að Jóhann Berg Guðmundsson færi líklega í myndatöku vegna meiðsla sinna.

Jóhann Berg fór meiddur af velli í fyrri hálfleik þegar Burnley gerði 1-1 jafntefli við Fulham í gær. Talað er um að hann sé meiddur í læri.
Dyche segir að hann fái væntanlega meiri upplýsingar um stöðu mála á morgun en sagði að útlitið væri ekkert alltof gott.

Hann telji að Jóhann Berg muni þurfa einhvern tíma til að jafna sig.

Burnley mætir West Bromwich Albion á laugardaginn. Fyrirliði Burnley, Ben Mee, snýr aftur í þann leik en hann var ekki með í leiknum í gær eftir að hafa fengið höfuðhögg í sigrinum gegn Crystal Palace um síðustu helgi.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.