Fotbolti.net
18.02.24 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir dagsins: Höjlund og Adingra bestir

Einkunnir dagsins: Höjlund og Adingra bestir
Canon

Mynd: EPA

Rasmus Höjlund var besti leikmaður vallarins er Manchester United lagði Luton Town á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Höjlund skoraði bæði mörk Man Utd í 1-2 sigri og fær 9 í einkunn hjá Sky Sports.
Luton sýndi flotta frammistöðu gegn Man Utd og hélt boltanum vel innan liðsins auk þess að skapa sér mikið af marktækifærum, þó að þau hafi ekki verið sérlega hættuleg.

Casemiro og Bruno Fernandes áttu ekki sérlega góðan leik og fá 5 í einkunn, alveg eins og Alejandro Garnacho og Luke Shaw.

Þá var Simon Adingra bestur í 0-5 sigri Brighton gegn Sheffield United með 9 í einkunn, þar sem aðrir sóknarleikmenn Brighton fengu 8 fyrir sinn þátt.

Adingra skoraði tvennu í sigrinum gegn tíu leikmönnum Sheffield sem sáu aldrei til sólar. Mason Holgate var skúrkurinn enda fékk hann 1 í einkunn fyrir sinn þátt, þar sem hann fékk beint rautt spjald eftir hrikalega tæklingu snemma leiks.

Luton: Kaminski (7); Mengi (6), Osho (6), Bell (5); Ogbene (6), Barkley (7), Lokonga (8), Doughty (6); Morris (7), Woodrow (5), Chong (6)
Varamenn: Clark (6), Townsend (6)

Man Utd: Onana (6); Dalot (7), Varane (7), Maguire (6), Shaw (5); Mainoo (6), Casemiro (5); Garnacho (5), Fernandes (5), Rashford (6); Hojlund (9)
Varamenn: Lindelof (7), Evans (8), McTominay (6)



Sheffield United: Foderingham (5); Bogle (6), Holgate (1), Ahmedhodzic (4), Robinson (4), Larouci (5); Osborn (5), Hamer (5), Souza (5), McAtee (5); Osula (5).
Varamenn: Trusty (5), Brooks (5), Brewster (6), Norwoos (6), Davies (6)

Brighton: Verbruggen (7), Lamptey (6), Webster (6), Van Hecke (7), Dunk (8), Gilmour (7), Gross (8), Buonanotte (8), Adingra (9), Welbeck (8), Mitoma (8).
Varamenn: Igor (6), Moder (6), Ferguson (6), Fati (6)
Einkunnir dagsins: Höjlund og Adingra bestir
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.