Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   mið 18. mars 2020 20:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ceferin: Liverpool á ekki að verða meistari nema tímabilið klárist
Aleksander Ceferin, forseti UEFA, segir að Liverpool eigi ekki að fá Englandsmeistaratitil afhentan ef allt fer á versta veg og tímabilinu verði aflýst.

Eins og staðan er núna er búið að fresta öllum leikjum út þennan mánuð og ólíklegt að deildin hefjist á ný í byrjun apríl eins og upprunalega var stefnt á.

Á morgun fundar enska úrvalsdeildin um framhaldið hjá sér og þá verður framhaldið skýrara.

Liverpool er langefst í ensku úrvalsdeildinni. Liðið er með 25 stiga forskot og þarf einungis sex stig til að tryggja titilinn.

„Ég hef bæði séð og heyrt falskar fréttir um að UEFA ætli að ráðleggja deildum að klára deildir sínar núna og lýsa því yfir að liðið númer eitt sé meistari. Ég get sagt ykkur það að það er ekki rétt,“ sagði Ceferin.

„Markmið okkar er að klára deildirnar og við höfum ekki ráðlagt neinni deild að enda tímabilið núna," bætti forsetinn við.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner