Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. mars 2021 13:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
U21 hópurinn: Sami hópur og á vefsíðu UEFA
Icelandair
Jón Dagur Þorsteinsson er fyrirliði liðsins.
Jón Dagur Þorsteinsson er fyrirliði liðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Snorri er þjálfari U21 landsliðsins.
Davíð Snorri er þjálfari U21 landsliðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U21 landsliðshópurinn fyrir riðlakeppni Evrópumótsins var í dag kynntur á fréttamannafundi hjá KSÍ.

Hópurinn var opinberaður á vef UEFA síðastliðinn þriðjudag og er hópurinn sem var kynntur í dag, sá sami og var kynntur á þriðjudag.

Frá síðasta hóp í undankeppni EM detta Alfons, Axel Óskar Andrésson, Jónatan Ingi Jónsson og Valgeir Valgeirsson úr hópnum. Inn koma Finnur Tómas Pálmason, Mikael Anderson og Stefán Teitur Þórðarson. Jón Dagur Þorsteinsson verður fyrirliði liðsins en Ísland er í riðli með Rússlandi, Danmörku og Frakklandi.

Davíð Snorri Jónasson stýrir liðinu á mótinu þar sem Arnar Þór Viðarsson tók við A-landsliðinu.

Markverðir:
Elías Rafn Ólafsson - Fredericia
Hákon Rafn Valdimarsson - Grótta
Patrik Sigurður Gunnarsson - Silkeborg

Varnarmenn:
Ari Leifsson - Stromsgödset
Finnur Tómas Pálmason - Norrköping
Hörður Ingi Gunnarsson - FH
Ísak Óli Ólafsson - SönderjyskE
Kolbeinn Birgir Finnsson - Borussia Dortmund
Róbert Orri Þorkelsson - Breiðablik
Valgeir Lunddal Fridriksson - Häcken

Miðjumenn:
Alex Þór Hauksson - Öster
Andri Fannar Baldursson - Bologna
Bjarki Steinn Bjarkason - Venezia
Ísak Bergmann Jóhannesson - Norrköping
Jón Dagur Þorsteinsson AGF
Kolbeinn Þórðarson - Lommel
Mikael Anderson - Midtjylland
Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg
Valdimar Þór Ingimundarson - Stromsgödset
Willum Þór Willumsson - BATE Borisov
Þórir Jóhann Helgason - FH

Sóknarmenn:
Brynjólfur Andersen Willumsson - Kristiansund
Sveinn Aron Guðjohnsen - OB


Athugasemdir
banner
banner
banner