Fotbolti.net
18.04.19 - 19:28
Hafliði Breiðfjörð

Fjolla: Þær vældu frá fyrstu mínútu

Auglýsing
Fjolla í leiknum í kvöld.

Fjolla í leiknum í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
<i>„Þetta var baráttuleikur frá fyrstu mínútu til enda, við lögðum leikinn þannig upp, barátta, barátta, barátta,"</i> sagði Fjolla Shala leikmaður Breiðabliks eftir 3-1 sigur á Val í úrslitaleik Lengjubikars kvenna í dag.
„Valsliðið fílar ekki mikið að láta sparka í sig. Það sást því þær vældu frá fyrstu mínútu," sagði Fjolla en tæklingarnar gengu þó í báðar áttir og henni var alveg sama um það.

„Við erum svo harðar og vorum ekkert að væla. Við spilum hart og ef við fáum það til baka þá fáum við það til baka."

„Við töpuðum á móti þeim síðast, það var fyrsti leikurinn okkar úti. Það er alltaf erfitt fyrir Blika að fara út. Við erum að byggja upp og það sem skiptir máli er sumarið. Þetta er bara æfingamót og fínt að enda það með titli."

Nánar er rætt við Fjollu í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.