Fotbolti.net
18.05.22 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

Lampard: Jákvætt að þetta sé í okkar höndum

Lampard: Jákvætt að þetta sé í okkar höndum
Canon

Mynd: EPA

Frank Lampard, stjóri Everton, segir að leikmenn sínir séu með fulla einbeitingu á að halda sér í úrvalsdeildinni. Liðið fær Crystal Palace í heimsókn annað kvöld og mun með sigri tryggja áframhaldandi veru í deild þeirra bestu.

Everton heimsækir svo Arsenal í lokaumferðinni á sunnudag.
„Við förum inn í þennan leik meðvitaðir um að við þurfum örfá stig í viðbót til að vera öruggir. Þetta snýst um að einbeita okkur að okkur sjálfur. Það er jákvætt að vera með þetta í okkar höndum," segir Lampard.

Sóknarmaðurinn Dominic Calvert-Lewin er kominn af meiðslalistanum og skoraði í 2-3 tapinu gegn Brentford á dögunum.

„Það er mjög gott að vera komnir með Dominic aftur, sérstaklega með svona frammistöðu eins og hann sýndi gegn Brentford. Hann var mjög kraftmikill."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.