Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   lau 18. maí 2024 15:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Bayern tapaði án Kane - Bochum í umspilið
Leverkusen ósigrað
Victor Boniface kom Leverkusen yfir gegn Augsburg
Victor Boniface kom Leverkusen yfir gegn Augsburg
Mynd: EPA
Bochum fer í umspil um áframhaldandi veru í deildinni
Bochum fer í umspil um áframhaldandi veru í deildinni
Mynd: Getty Images

Það var ótrúleg dramatík í lokaumferð þýsku deildarinnar í dag en meistararnir í Leverkusen fóru ósigraðir í gegnum deildina. Þá fer Bochum í umspil gegn Ísaki Bergmann Jóhannessyni og félögum í Dusseldorf um sæti í deildinni á næstu leiktíð.


Union Berlin var í umspilssætinu fyrir lokaumferðina og þurfti á sigri að halda gegn Freiburg og treysta á úrslit í kringum sig. Það var rosaleg dramatík en Union komst yfir í leeiknum. Freiburg tókst að jafna seint en í uppbótatíma tryggði Janik Haberer liðinu áframhaldandi veru í deildinni.

Köln tapaði gegn nýliðum Heidenheim og fellur niður í næst efstu deeild en sigur hefði ekki bjargað liðinu.

Bochum fer hins vegar í umspilið eftir tap gegn Werder Bremen.

Hoffenheim vann magnaðan endurkomusigur á Bayern og tryggði sér þ.a.l sæti í Sambandsdeildinni. Harry Kane var ekki með Bayern vegna meiðsla en liðið endaði í 3. sæti. Þýsku meistararnir í Leverkusen töpuðu ekki einum einasta leik á tímabilinu en liðið lagði Augsburg í dag.

Þá átti Marco Reus frábæran í sínum síðasta leik fyrir Dortmund í deildinni en hann skoraði eitt og lagði upp annað í 4-0 sigri gegn Darmstadt.

Úrslit og lokastöðuna í deildinni má sjá hér fyrir neðan

Borussia D. 4 - 0 Darmstadt
1-0 Ian Maatsen ('30 )
2-0 Marco Reus ('38 )
3-0 Julian Brandt ('72 )
4-0 Donyell Malen ('88 )

Union Berlin 2 - 1 Freiburg
0-0 Josip Juranovic ('38 , Misnotað víti)
1-0 Benedict Hollerbach ('68 )
1-1 Ritsu Doan ('85 )
2-1 Janik Haberer ('90 )
2-1 Kevin Volland ('90 , Misnotað víti)

Bayer 2 - 1 Augsburg
1-0 Victor Boniface ('12 )
2-0 Robert Andrich ('27 )
2-1 Mert Komur ('62 )

Eintracht Frankfurt 2 - 2 RB Leipzig
0-1 Xavi Simons ('42 , víti)
0-2 Benjamin Sesko ('46 )
1-2 Hugo Ekitike ('60 )
2-2 Omar Marmoush ('77 , víti)

Wolfsburg 1 - 3 Mainz
1-0 Kevin Paredes ('18 )
1-1 Brajan Gruda ('24 )
1-2 Sepp Van den Berg ('71 )
1-3 Jonathan Michael Burkardt ('85 )

Hoffenheim 4 - 2 Bayern
0-1 Mathys Tel ('4 )
0-2 Alphonso Davies ('6 )
1-2 Maximilian Beier ('8 )
2-2 Andrej Kramaric ('68 )
3-2 Andrej Kramaric ('85 )
4-2 Andrej Kramaric ('87 )

Werder 4 - 1 Bochum
1-0 Marco Friedl ('6 )
2-0 Anthony Jung ('78 )
3-0 Jens Stage ('80 )
3-1 Christopher Antwi-Adjej ('85 )
4-1 Romano Schmid ('88 )

Stuttgart 4 - 0 Borussia M.
1-0 Sehrou Guirassy ('23 )
2-0 Sehrou Guirassy ('31 )
3-0 Woo-Yeong Jeong ('75 )
4-0 Silas Wamangituka ('83 )

Heidenheim 4 - 1 Koln
1-0 Eren Dinkci ('16 )
2-0 Eren Dinkci ('22 )
3-0 Kevin Sessa ('36 )
3-1 Steffen Tigges ('64 )
4-1 Jan-Niklas Beste ('78 )


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Augsburg 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Leverkusen 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Bayern 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Bochum 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Dortmund 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Gladbach 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Eintracht Frankfurt 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Freiburg 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Heidenheim 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Hoffenheim 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Holstein Kiel 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Mainz 0 0 0 0 0 0 0 0
13 RB Leipzig 0 0 0 0 0 0 0 0
14 St. Pauli 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Stuttgart 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Union Berlin 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Köln 34 5 12 17 28 60 -32 27
17 Werder 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Wolfsburg 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Darmstadt 34 3 8 23 30 86 -56 17
Athugasemdir
banner
banner
banner