KA mun spila þriðja heimaleik sinn í sumar næstkomandi sunnudag þegar Valur kemur í heimsókn á Akureyri.
Það er reyndar ekki heimsókn á Akureyri lengur því leikurinn mun fara fram á Dalvíkurvelli.
Greifavöllurinn er ekki enn klár í slaginn og því er búið að færa leikinn á hinn frábæra Dalvíkurvöll.
KA hefur spilað tvo heimaleiki í sumar, en þeir hafa báðir farið fram á Dalvík. KA hefur átt mjög gott sumar í Pepsi Max-deildinni og er í toppbaráttunni.
Af vefsíðu KSÍ
Breyting hefur verið gerð á leikvell leiks KA og Vals í Pepsi Max deild karla.
Leikurinn fer nú fram á Dalvíkurvelli, en ekki Greifavellinum, sunnudaginn 20. júní kl. 16:00.
Pepsi Max deild karla
KA – Valur
Var: Sunnudaginn 20. júní kl. 16.00 á Greifavellinum
Verður: Sunnudaginn 20. júní kl. 16.00 á Dalvíkurvelli
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir