Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   sun 18. ágúst 2019 18:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hallgrímur Mar: Fór inn í klefa og brotnaði niður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta vítaklúður lýsir kannski hvernig leikurinn var. Mér fannst við vera mikið betra liðið inn á vellinum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við fengum fullt af færum til að bæta við og hefðum átt að klára þá," sagði Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, eftir 1-1 jafntefli gegn ÍBV.

Lestu um leikinn: ÍBV 1 -  1 KA

Halldór Páll í marki ÍBV varði vítaspyrnu frá Hallgrími á síðustu stundu í uppbótartíma seinni hálfleiks.

ÍBV var að ná í sitt fyrsta stig síðan 2. júní síðastliðinn.

„Auðvitað ætluðum við að koma hingað og ná í þrjú stig. Fyrir fram erum við betra lið og eigum að sjálfsögðu að fá þrjú stig, en við gerum ekki nóg til þess - því miður."

Hvernig leið honum eftir að vítið var varið?

„Ég hefði ekki átt að svekkja mig svona mikið, ég hefði örugglega getað náð frákastinu. Ég hljóp bara inn í klefa og brotnaði niður. Þetta var ólýsanlega óþægilegt."

Viðtalið er hér að ofan. KA er í níunda sæti með 20 stig. Liðið er enn í harðri fallbaráttu.
Slapp
banner