Fotbolti.net
18.08.22 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Liam Delap lánaður frá City (Staðfest) - Fetar í fótspor föður síns

Liam Delap lánaður frá City (Staðfest) - Fetar í fótspor föður síns
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur lánað Liam Delap til Stoke City út tímabilið. Stoke er í Championship og mun hann öðlast leikreynslu þar.

Liam er nítján ára sóknarmaður sem spilaði sína fyrstu keppnisleiki í febrúar þegar hann kom við sögu í úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni.
Með því að fara til Stoke fetar Liam í fótspor föður síns Rory. Rory var mjög vinsæll hjá Stoke á þeim sjö árum sem hann lék með liðinu á meðan það var í úrvalsdeildinni. Rory var þekktur fyrir sín löngu innköst.

Liam er uppalinn hjá Deby og Manchester City og hefur leikið með yngri landsliðum Englands.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Swansea13+726
3Wolves13+724
4West Brom13+524
5Southampton13+1523
6Birmingham13+1023
7Stoke City13+423
8West Ham13+1522
9QPR13+520
10Sheffield Utd13+219
11Portsmouth13+119
12Millwall13+218
13Blackburn13-118
14Bristol City13-218
15Norwich13-115
16Lincoln City13-915
17Cardiff City13-114
18Wrexham13-414
19Bolton13-814
20Charlton Athletic13-1014
21Watford13-1111
22Burnley13-89
23Derby County13-147
24Preston NE13-175
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.