Fotbolti.net
18.08.22 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Wilson hefði viljað sjá VAR fá tækifæri til að meta atvikið

Wilson hefði viljað sjá VAR fá tækifæri til að meta atvikið
Canon

Mynd: Getty Images

Callum Wilson, leikmaður Newcastle, kom boltanum í net Brighton í leik liðanna á laugardag. Markið fékk þó ekki að standa þar sem Graham Scott, dómari leiksins, var búinn að flauta í flautu sína og dæma hættuspark á Wilson.
„Fyrir mér þá hef ég fulla stjórn á því sem ég er að gera, ég halla mér og svo reyni ég að flikka boltanum yfir höfuðið á leikmanninum - ég er bara með augun á boltanum. Ég sný mér til að skjóta en þá er dómarinn þegar búinn að flauta, og því fer þetta ekki í skoðun í VAR," sagði Callum Wilson í The Footballers Football Podcast.

„Ef það hefði gert það þá held ég að VAR hefði haft örlítið öðruvísi skoðun á þessu atviki, þegar þeir sjá að ég er bara að horfa á boltann og varnarmaðurinn kemur með olnbogann á undan sér," bætti Wilson við.

Mark Clattenburg, fyrrum dómari í deildinni, var sammála ákvörðun dómara leiksins.

„Það eina sem ég mun segja er að markvörðurinn reynir ekki að verja. Hann hefði örugglega varið ef það hefði ekki verið búið að flauta. Þú segir að boltinn hafi farið í hornið, ég er ekki svo viss. Menn verða rólegri þegar þeir heyra flautið. Ef þú hefðir ekki heyrt flautið þá hefði boltinn eflaust farið í röð Z," sagði Clattenburg.

Lokatölur á Amex leikvanginum urðu 0-0 og eru bæði lið með fjögur stig eftir tvær umferðir. Atvikið má sjá hér að neðan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.