Fotbolti.net
18.09.21 - 17:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Siggi Bond: Vorum lang besta liðið

Auglýsing
Siggi Bond: Vorum lang besta liðið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur Vogum eru sigurvegarar 2. deildar en liðið tapaði gegn KV í síðustu umferðinni.
„Tilfinningarnar eru skrítnar, við vorum búnir að vinna deildina," sagði Sigurður Gísli Bond Snorrason leikmaður Þróttar eftir leikinn gegn KV í dag.

„Ég hefði viljað koma inná og jafna þetta og var nálægt því fyrir Völsung en því miður náðum við því ekki en KV voru góðir og áttu þetta skilið."

Hefði Bond frekar viljað fá Völsung með þeim upp?

„Jájá, alveg eins, Völsungar eru búnir að vera góðir við okkur, sent okkur fullt af videoum svo við ætluðum að gera þetta fyrir þá en náðum því ekki."

Hann var ánægður með tímabilið hjá Þrótti Vogum í heild sinni.

„Við ættum að vera með miklu fleiri stig en við vorum lang besta liðið og mjög sanngjarn sigur á mótinu."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.