Fotbolti.net
18.10.19 - 11:45
Magnús Már Einarsson

Klopp um sameiginlegt lið Liverpool og Man Utd: Þetta er grín

Jurgen Klopp stjóri Liverpool.

Jurgen Klopp stjóri Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segist ekki hlusta á raddir sem segja að leikur liðsins gegn Manchester United um helgina eigi að vera auðveldur.

Liverpool er með fullt hús stiga á toppi ensku úrvalsdeildarinnar á meðan Manchester United er í 12. sæti. Danny Mills, sérfræðingur á Sky, valdi heilt lið leikmanna frá Liverpool <a href="https://fotbolti.net/fullStory.php?id=287217" target="_blank">þegar hann stillti upp sameiginlegu liði</a> Liverpool og Manchester United í vikunni.
„Þegar þið stillið upp sameiginlegu liði liðanna á Sky og það er allt skipað leikmönnum Liverpool. Það er grín. Það er eins og það sé verið að búa til bananahýði sem við getum runnið á," sagði Klopp á fréttamannafundi í dag.

„Heimurinn er eins og sirkus í augnablikinu og við erum í miðjunni þar. Sumir vilja að við vinnum en aðrir vilja að við töpum. Þetta hefur ekki áhrif á mig. Ég veit 100% hversu sterkt lið Manchester United er."

Klopp var spurður að því hversu mikið hann nýtur þess að spila stórleiki eins og gegn erkifjendunum í Manchester United. „Mikið! Þetta er eins og saltið í súpunni," sagði Klopp.

„Þú myndir vilja undirbúa þig fyrir svona leik með því að hafa heila æfingaviku en við vorum að koma úr landsleikjahléi. Það er sama staða hjá báðum liðum. Við höfum fengið 3-4 daga til að undirbúa okkur," sagði Klopp og bætti við að ekkert stress sé í leikmannahópnum.

„Við erum ekki stressaðir út af sigurgöngunni okkar og sögunni sem við gætum skrifað. Við erum mjög afslappaðir og mjög metnaðarfullir líka," sagði Klopp.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Aston Villa10-115
9Brentford10+514
10Leeds10+214
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Sunderland10-98
19Man Utd10-77
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.