Fotbolti.net
18.10.20 - 18:06
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía: Fjórtán mörk í þremur leikjum - Simeone með tvennu

Sveinn Aron Guðjohnsen er samningsbundinn Spezia en leikur með OB að láni.

Sveinn Aron Guðjohnsen er samningsbundinn Spezia en leikur með OB að láni.

Canon

Mynd: Getty Images

Á undanförnum árum hefur ítalska deildin verið að vinna sér inn bætt orðspor sem skemmtileg, opin og markamikil deild. Þremur leikjum var að ljúka og voru fjórtán mörk skoruð í þeim. Í dag hefur því verið skorað 21 mark í fjórum leikjum.
Það tók Fiorentina fjórar mínútur að komast tveimur mörkum yfir gegn nýliðum Spezia en heimamenn gáfust ekki upp og náðu að koma til baka.

Cristiano Biraghi, fyrrum vængbakvörður Inter, skoraði og lagði upp fyrir gestina.

Bæði lið eru með fjögur stig eftir fjórar umferðir.

Spezia 2 - 2 Fiorentina
0-1 German Pezzella ('2)
0-2 Cristiano Biraghi ('4)
1-2 Daniele Verde ('39)
2-2 Diego Farias ('75)

Á sama tíma átti Torino heimaleik gegn Cagliari og töpuðu heimamenn þrátt fyrir tvennu frá Andrea Belotti.

Giovanni Simeone, sonur Diego, skoraði tvennu og er kominn með þrjú mörk í fjórum leikjum á tímabilinu.

Torino er því áfram án stiga á meðan Cagliari er komið með fjögur stig.

Torino 2 - 3 Cagliari
1-0 Andrea Belotti ('4, víti)
1-1 Joao Pedro ('12)
1-2 Giovanni Simeone ('19)
2-2 Andrea Belotti ('49)
2-3 Giovanni Simeone ('73)

Að lokum hafði Udinese betur gegn Parma þar sem Gerard Deulofeu og Ignacio Pussetto, sem eru báðir nýkomnir frá Watford, komu inn af bekknum í síðari hálfleik.

Staðan var 2-2 eftir nokkuð jafnan leik þegar Pussetto gerði sigurmarkið með flottu langskoti.

Udinese jafnaði Parma á stigum með sigrinum. Bæði lið eru með þrjú stig eftir fjórar umferðir.

Udinese 3 - 2 Parma
0-1 Hernani ('26)
1-1 Samir ('28)
2-1 Simone Iacoponi ('52, sjálfsmark)
2-2 Yann Karamoh ('70)
3-2 Ignacio Pussetto ('88)
Ítalía: Fjórtán mörk í þremur leikjum - Simeone með tvennu
Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+217
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Fiorentina11-711
15Lecce11-1010
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.