Sverrir Ingi Ingason var á sínum stað í hjarta varnarinnar hjá PAOK sem gerði jafntefli við AEK í Aþenu í gríska boltanum í dag.
Heimamenn í AEK komust yfir en gestirnir voru betri í leiknum og óheppnir að jafna ekki fyrr en á lokamínútunum.
Sverrir Ingi er mikilvægur hlekkur í liði PAOK sem er meðal bestu félaga Grikklands. Liðið hefur farið rólega af stað á nýju tímabili og er með níu stig eftir fimm umferðir.
AEK Aþena 1 - 1 PAOK
1-0 K. Ansarifard ('23)
1-1 T. Murg ('89)
Í belgísku B-deildinni var Aron Sigurðarson í byrjunarliði St. Gilloise sem hafði betur á útivelli gegn Lierse.
St. Gilloise komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik og var Aroni skipt út á 70. mínútu.
Liðið er í toppbaráttu með fjórtán stig eftir sjö umferðir, einu stigi eftir toppliði Seraing.
Lierse 0 - 2 St. Gilloise
0-1 T. Teuma ('20)
0-2 D. Vanzeir ('35)
Athugasemdir