Fotbolti.net
18.11.26 - 14:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kveður sem algjör goðsögn - „Einn af okkar allra bestu landsliðsmönnum"

Kveðjustund á mánudagskvöld.

Kveðjustund á mánudagskvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Á mánudag kvaddi Aron Einar Gunnarsson landsliðið eftir átján ára feril, 113 landsleiki og tvö stórmót. Aron deilir leikjametinu með Birki Bjarnasyni.

Lars Lagerbäck gerði Aron að landsliðsfyrirliða 2012 og hann leiddi liðið bæði á EM og HM, fyrstu stórmótin í sögunni karlamegin.

Aron var algjör lykilmaður í íslenska liðinu, varði vörnina með kjafti og klóm, stýrði leikmönnum í kringum sig og byrjaði einnig ófáar sóknir liðsins. Mikilvægi hans lýsir sér einna best í því að þegar hann var ekki á svæðinu þá var tekið eftir því og margir hafa spurt fáum við einhvern tímann annan Aron Einar?

Í Innkastinu eftir landsleikinn gegn Lúxemborg, þann síðasta sem Aron Einar spilaði, ræddu þeir Elvar Geir, Kári Snorrason og Valur Gunnarsson um gamla landsliðsfyrirliðann.
„Hann fékk hlýja strauma frá landsmönnum, sama hvar þeir voru að fylgjast með þessu. Þvílíkur landsliðsmaður, þvílíkur ferill og þvílíkur fyrirliði. Maður hugsar, ef að þessi karakter, þetta púsl og þessi leiðtogi hefði ekki verið í þessum hópi, hefðum við þá farið alla þessa leið, á þessi stórmót og náð þessum árangri?" velti Elvar fyrir sér og hélt áfram:

„Maður sér virðinguna sem allir sem hafa unnið með honum bera fyrir honum, allir samherjar hans. Þetta var rosalega tilfinningaríkt."

Valur Gunnarsson tók næst til máls: „Þetta var falleg stund. Meira að segja Gylfi Þór Sigurðsson fór í viðtal hjá Sýn eftir leik þar sem að hann var að sýna tilfinningar og maður sá að hann var að fara að beygja af og ég held ég hafi aldrei séð það hjá Gylfa áður."

„Þegar að við erum hvað bestir, á gullaldartímanum okkar, þá var hann náttúrulega ekki bara einhver leiðtogi á vellinum. Hann var frábær fótboltaspilari inn á vellinum. Hvernig hann var að stoppa sóknir, byrja spil og koma Gylfa og þeim inn í leikinn og annað. Frábær fótboltamaður fyrir utan það hvað hann hefur verið mikill leiðtogi og mikilvægur sem slíkur."


Kári rifjaði þá upp skemmtilegt augnablik gegn Englandi á EM.

„Gleymi því aldrei á móti Englandi þegar hann prjónaði sig einhvern veginn í gegnum ensku vörnina og klúðraði einhverju færi og grenjaði síðan úr hlátri yfir að vera kominn í þessa stöðu."

Manni leið aldrei illa þegar Aron á miðjunni það veitti öryggi.

„Hann gat stoppað einhvern veginn allar sóknir, sama hvort andstæðingurinn hét Holland, Tyrkland, England eða hvað. Þetta er einn af okkar allra bestu landsliðsmönnum og með einhvern allra glæstasta ferilinn í þessum uppgangi. Það verður söknuður af honum," sagði Valur.

Aron lagði allt sitt í sölurnar fyrir landsliðið, fórnaði miklu til að geta verið til staðar fyrir liðið. Á HM spilaði hann á annarri löppinni og hann missti af fæðingu síns fyrsta barns því hann var að spila mikilvægan leik í Kasakstan.

„Hann fórnaði öllu fyrir íslenska landsliðið og það er gaman að sjá hvað þetta landslið skiptir gullkynslóðina miklu máli. Hann var ekki viðstaddur fæðingu fyrsta barnsins síns því að þá var hann í Kasakstan. Hann talaði um það eftir Búlgaríuleikinn og sagði: Mínir nánustu vita hvaða fórnir ég hef fært fyrir þetta lið," sagði Elvar.

„Bara svo hann viti það, þá kunnum við svo sannarlega að meta það, algjör goðsögn," bætti Elvar við.

„Ekki spurning. Ég meina, ég og fjölskylda mín fórum út til Frakklands á stórmót út af mönnum eins og Aroni Einari Gunnarssyni, í einhverja skemmtilegustu utanlandsferð sem maður hefur farið í. Þetta er ekki bara fótbolti, þetta býr til minningar og hann á mikinn þátt í því," sagði Valur.
EM í Frakklandi.

EM í Frakklandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliði árið 2012.

Fyrirliði árið 2012.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir leikinn gegn Argentínu á HM.

Eftir leikinn gegn Argentínu á HM.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fagnað á móti Englendingum.

Fagnað á móti Englendingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Lúxus landsliðsgluggi og takk Aron

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.