18.11.26 - 13:01
Elvar Geir Magnússon
Máni kemur Víkingaklappinu til varnar - „Óþolandi þvæla“

Aron Einar stýrir Víkingaklappinu í síðasta sinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Máni á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björn Þorláksson, fjölmiðlamaður á Samstöðinni, hefur fengið mikil viðbrögð við Facebook færslu þar sem hann segist vonast til þess að íslenskir stuðningsmenn hætti að nota Víkingaklappið nú þegar Aron Einar Gunnarsson hefur lagt landsliðsskóna á hilluna.
„Nú þegar víkingaklappið er vonandi úr sögunni vona ég að tónvís stemmningsmaður taki að sér í verktöku að troða ullarsokk upp í alla þá á Laugardalsvelli sem framvegis ætla sér að ýlfra Áfram Ís-laaand með skriði úr fís niður í dís!" skrifaði Björn.

Ýmsir táka undir með honum en meðal þeirra sem eru algjörlega ósammála er Þorkell Máni Pétursson, stjórnarmaður hjá KSÍ.
„Þetta er óþolandi þvæla. Víkingaklappið er falleg nálgun leikmanna og stuðningsmanna. Af hverju halda menn að fleiri landslið hafi tekið þetta upp eða svipað?" skrifar Máni.
Þetta ritar hann við færslu Hilmars Jökuls, formanns Tólfunnar, sem segir að Víkingaklappið sé ekkert að fara.
„Mér finnst alltaf jafn fyndið þegar fólk sem ég hef aldrei á mínum tólf ára ferli í Tólfunni séð mæta í stúkuna, ætlar að segja okkur í Tólfunni hvað við eigum og eigum ekki að gera á vellinum. Víkingaklappið er eins og áramótaskaupið - Því er oft stjórnað af sama fólkinu, þó ekki alltaf, og það kemur alltaf á hverju ári. Það heldur alltaf áfram, af því að þótt einhverjir fái leið á því, þá gerir Tólfan það ekki," segir Hilmar.