18.11.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeild kvenna: Chelsea á toppnum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Chelsea er á toppnum í Meistaradeild kvenna eftir nauman sigur á PSG.
Það stefndi í annað markalausa jafntefli Chelsea í röð en liðið gerði markalaust jafntefli gegn Thelmu Karen Pálmadóttur og stöllum í Hacken í síðustu umferð.

Chelsea var betri aðilinn í kvöld og það var Veerle Buurman sem tryggði liðinu stigin þrjú með marki undir lokin.
Þá vann Juventus sigur á Leuven með tveimur mörkum undir lokin. Chelsea er á toppnum með 11 stig eftir fimm umferðir en Lyon og Barcelona eru stigi á eftir og eiga leik til góða. Juventus er í 5. sæti með 9 stig, PSG er í 10. sæti með 5 stig og Leuven í 17. sæti með tvö stig.
Chelsea W 1 - 0 PSG W
1-0 Veerle Buurman ('87 )
Juventus W 2 - 0 Oud-Heverlee W
1-0 Annamaria Serturini ('86 )
2-0 Matilde Pavan ('90 )