18.11.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mudryk kennir úkraínska sambandinu um

Mynd: EPA

Mynd: Tottenham

Mynd: EPA
Mykhailo Mudryk, lánsmaður hjá Tottenham frá Chelsea, kennir úkraínska fótboltasambandinu um keppnisbannið sem hann fékk eftir að hann féll á lyfjaprófi.
Hann féll á lyfjaprófi árið 2024 og var dæmdur í fjögurra ára keppnisbann en því var aflétt síðasta sumar. Hann spilaði með Chelsea á undirbúningstímabilinu en var síðan lánaður til Tottenham.

Hann hefur aðeins komið við sögu í einum leik en gæti snúið aftur um helgina eftir meiðsli.
Hann kenndi úkraínska sambandinu um í viðtali á úkraínsku Youtube-rásinni Guest of Gordon,
„Þetta umhverfi í úkraínska landsliðinu, þetta hefði aldrei átt að gerast. Ég hafði aldrei heyrt um lyf eins og meldóníum. Það er lyf sem maður fær aðeins í Austur-Evrópu. Það gæti aðeins hafa komist inn í líkama minn í Úkraínu. Það er ekkert slíkt lyf til á Englandi," sagði Mudryk.
Hann sagði einnig að Andriy Shevchenko, forseti úkraínska ambandsins, hefði veitt lítinn stuðning, kenndi sambandinu um leka sem komu fram í málinu og hélt því fram að meðferð þess hefði tafið endurkomu hans í knattspyrnu.
„Ég trúði þessu ekki. Þetta var eins og að hrasa niður skýjakljúfur. Maður myndi falla á jörðina í draumi en í raunveruleikanum þá hélt ég áfram að detta. Þetta fór mjög illa með mig andlega."