Fotbolti.net
18.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Peter Storey látinn

Peter Storey látinn
Canon

Mynd: Arsenal

Peter Storey, fyrrum leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, er látinn. Hann lék 501 keppnisleik fyrir Arsenal á árunum 1965 til 1977.
Storey var partur af Arsenal liðinu sem vann tvennuna tímabilið 1970-71 undir stjórn Bertie Mee.

„Allir hjá Arsenal eru hryggir yfir andláti Peter Storey. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans og ástvinum á þessari sorgarstundu," segir í yfirlýsingu frá Arsenal, sem mun minnast Storey í næsta heimaleik sínum næsta þriðjudag - gegn Borussia Dortmund.

Storey hóf ferilinn sem hægri bakvörður en varð síðar afturliggjandi miðjumaður og lék 19 landsleiki á ferlinum.

Hann er áttundi leikjahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi og lagði skóna á hilluna eftir misheppnaða dvöl hjá Fulham 1977.

Líf hans eftir fótboltaferilinn vakti athygli þar sem hann var dæmdur fyrir hina ýmsu glæpi. Hann fékk fyrst skilorðsbundinn dóm fyrir að reka vændishús 1979 áður en hann var dæmdur í þrjú ár fyrir aðild sína að fölsunarmáli.

Hann sat aftur inni árið 1990 fyrir misheppnaða tilraun til að smygla klámmyndum til Bretlands.


Peter Storey látinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.