Fotbolti.net
18.11.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sú efnilegasta framlengir við FH

Sú efnilegasta framlengir við FH
Canon

Mynd: KSÍ

Kvennaboltinn
Ingibjörg Magnúsdóttir (2009) hefur skrifað undir nýjan samning við FH sem gildii út 2028.

Ingibjörg átti frábært tímabil með FH síðasta sumar þegar liðið hafnaði í 2. sæti Bestu deildarinnar. Hún kom að 12 mörkum í 23 leikjum.
Hún var valin efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar af leikmönnum á síðustu leiktíð.

„Það er mikið gleðiefni að framlengja við Ingibjörgu. Hún var frábær á síðasta tímabili, valin efnilegust í deildinni og við ætlum að hjálpa henni að eiga enn betra tímabil á næsta ári. Til hamingju Ingibjörg með nýja samninginn," sagði Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH við FH media.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.