Fotbolti.net
19.01.20 - 13:55
Ívan Guðjón Baldursson

Championship: Nottingham að blanda sér í toppbaráttuna

Joe Lolley skoraði tvö áður en honum var skipt útaf.

Joe Lolley skoraði tvö áður en honum var skipt útaf.

Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest 3 - 1 Luton Town
0-1 Harry Cornick ('23)
1-1 Joe Lolley ('36)
2-1 Joe Lolley ('57)
3-1 Lewis Grabban ('90, víti)
Nottingham Forest lenti óvænt undir á heimavelli gegn botnliði Luton er liðin mættust í eina leik dagsins í Championship deildinni.

Harry Cornick kom Luton yfir en Joe Lolley sneri stöðunni við fyrir heimamenn. Hann jafnaði fyrir leikhlé og kom sínum mönnum svo yfir í síðari hálfleik.

Nottingham var með stjórn á leiknum en náði þó ekki að tryggja sér sigurinn fyrr en Lewis Grabban, fyrrum sóknarmaður Bournemouth og Aston Villa, skoraði úr vítaspyrnu á 90. mínútu.

Nottingham er búið að fá 13 stig úr síðustu 5 leikjum og blandaði sér í toppbaráttuna með sigrinum í dag. Liðið er í fimmta sæti, fimm stigum frá Leeds United sem situr í öðru sæti.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.