Fotbolti.net
19.01.23 - 21:16
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Lagleg endurkoma Man City - Haaland jafnaði

Erling Braut Haaland er kominn aftur á skrið

Erling Braut Haaland er kominn aftur á skrið

Canon

Mynd: EPA

Julian Alvarez og Erling Braut Haaland voru rétt í þessu að jafna gegn Tottenham Hotspur á Etihad-leikvanginum og er staðan nú 2-2.
Dejan Kulusevski skoraði af stuttu færi eftir slæm mistök frá Ederson en hann reyndi að koma boltanum á Rodri. Sendingin var slök og komst Rodrigo Bentancur inn í sendinguna og fór boltinn til Kulusevski sem skoraði.

Stuttu síðar bætti Emerson Royal við öðru marki með skalla eftir darraðadans í teignum.

Man City stillti saman strengi í hálfleik og kom inn í þann síðari og jafnaði. Julian Alvarez minnkaði muninn á 52. mínútu áður en norski framherjinn Erling Braut Haaland jafnaði tveimur mínútum síðar.

Hörkuleikur á Etihad!

Sjáðu mistök Ederson í marki Kulusevski
Markið hjá Emerson
Alvarez minnkar muninn
Haaland jafnar
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.