Fotbolti.net
19.01.25 - 13:05
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarliðin í enska: Dalot, Maguire og Zirkzee byrja hjá Man Utd - Meiðslavandræði hjá Tottenham

Joshua Zirkzee fær sénsinn

Joshua Zirkzee fær sénsinn

Canon

Mynd: EPA

Þrír leikir hefjast klukkan 14:00 í 22. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en Manchester United og Tottenham eru bæði í eldlínunni.
Ruben Amorim, stjóri Man Utd, gerir þrjár breytingar frá 3-1 sigrinum á Southampton.

Harry Maguire kemur aftur í vörnina og þá koma þeir Diogo Dalot og Joshua Zirkzee einnig inn í liðið. Lisandro Martínez, Alejandro Garnacho og Rasmus Höjlund taka sér sæti á bekknum.

Ange Postecoglou gerir tvær breytingar á liði Tottenham sem heimsækir Everton á Goodison Park. Ben Davies kemur í vörnina og þá kemur James Maddison einnig inn en þeir Dominic Solanke og Yves Bissouma eru ekki með í dag vegna meiðsla og sömu sögu er að segja af velska vængmanninum Brennan Johnson.

David Moyes gerir einnig tvær breytingar á liði Everton. Jake O'Brien og Jesper Lindström koma inn fyrir Ashley Young og Jack Harrison.

Man Utd: Onana, Mazraoui, De Ligt, Maguire, Yoro, Dalot, Ugarte, Mainoo, Fernandes, Diallo, Zirkzee.

Brighton: Verbruggen, Dunk, Van Hecke, Veltman, Estupinan, Baleba, Ayari, Minteh, Mitoma, Pedro, Welbeck.



Nottingham Forest: Sels, Murillo, Williams, Anderson, Gibbs-White, Wood, Hudson-Odoi, Dominguez, Elanga, Milenkovic, Aina.

Southampton: Ramsdale, Walker-Peters, Downes, Harwood-Bellis, Aribo, Armstrong, Bree, Sugawara, Fernandes, Archer, Bednarek



Everton: Pickford, O'Brien, Tarkowski, Branthwaite, Mykolenko, Gueye, Mangala, Lindstrom, Doucoure, Ndiaye, Calvert-Lewin.

Tottenham: Kinsky, Porro, Dragusin, Gray, Davies, Spence, Bergvall, Sarr, Maddison, Kulusevski, Son.
Lucas Bergvall er í liði Tottenham

Lucas Bergvall er í liði Tottenham

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Leeds9+111
11Hull City9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.