Fotbolti.net
19.01.25 - 18:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Man City rúllaði yfir Ipswich - De Bruyne og Foden stórkostlegir

England: Man City rúllaði yfir Ipswich - De Bruyne og Foden stórkostlegir
Canon

Mynd: EPA

Ipswich Town 0 - 6 Manchester City
0-1 Phil Foden ('27 )
0-2 Mateo Kovacic ('30 )
0-3 Phil Foden ('42 )
0-4 Jeremy Doku ('49 )
0-5 Erling Haaland ('57 )
0-6 James McAtee ('69 )
Manchester City rúllaði yfir Ipswich í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Ipswich byrjaði leikinn vel en það var Phil Foden sem braut ísinn á 27. mínútu. Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Mateo Kovacic eftir undirbúning Foden.

Foden var ekki hættur því hann bætti við þriðja markinu áður en flautað var til leiksloka. Kevin de Bruyne lagði upp seinna mark Foden.

De Bruyne lagði síðan upp mark á Jeremy Doku sem lagði síðan upp fimmta markið á Erling Haaland og fagnaði hann því nýjum tíu ára samningi með marki.

Það var svo James McAtee sem negldi síðasta naglann í kistu Ipswich stuttu eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Man City er komið í Meistaradeildarsæti eftir sigurinn en Ipswich er áfram í fallsæti.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.