Fotbolti.net
19.02.20 - 19:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Simeone segir sigurinn hafa byrjað á hringtorginu

Diego Simeone.

Diego Simeone.

Canon

Mynd: Getty Images

Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, var mjög ánægður með það hvernig stuðningsmenn Atletico tóku á móti liðinu fyrir leikinn gegn Liverpool í Meistaradeildinni í gær.
Stuðningsmenn komu saman fyrir utan völlinn og tóku vel á móti liðunum er þau mættu til leiks. Myndband má sjá neðst í fréttinni sem sannar það.

Simeone segist aldrei hafa séð annað eins á átta árum sínum sem þjálfari Atletico.

„Sigurinn byrjaði á hringtorginu við hliðina á vellinum," segir Simeone. „Á átta árum þá hef ég aldrei séð aðrar eins móttökur frá stuðningsmönnum."

Atletico vann leikinn 1-0 og kom sigurmarkið frá Saul snemma leiks. Seinni leikurinn þessa einvígis í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fer fram á Anfield um miðjan mars.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.