Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   fös 19. febrúar 2021 05:55
Aksentije Milisic
England um helgina - Baráttan um Bítlaborgina
Það verður nóg um að vera í enska boltanum um helgina og margir mjög svo athyglisverðir leikir á dagskrá. Fyrsti leikurinn helgarinnar er í kvöld en þá mæta nýliðarnir í Leeds í heimsókn til Wolves.

Á laugardaginn er stærsti leikur helgarinnar en þá mætast Liverpool og Everton á Anfield. Liðin eru í sjötta og sjöunda sæti deildarinnar en fyrri viðureign liðanna lauk með jafntefli á Goodison Park. Liverpool hefur gengið illa upp á síðkastið og þá hefur Everton tapað síðastu tveimur deildarleikjum sínum, gegn fallbaráttuliði Fulham og síðan Man City.

Á sunnudaginn fer Manchester City til London og mætir Arsenal á Emirates leikvangnum. Lið City hefur verið óstöðvandi að undanförnu og þá vann Arsenal frábæran sigur á Leeds um síðustu helgi þar sem Pierre-Emerick Aubameyang skoraði þrennu.

Á sunnudeginum mætast West Ham og Tottenham í Lundúnarslag og kvöldleikurinn verður baráttan á milli Steve Bruce og Ole Gunnar Solskjær. Alla leiki helgarinnar má sjá fyrir neðan.

ENGLAND: Föstudagur
20:00 Wolves - Leeds

ENGLAND: Laugardagur
12:30 Southampton - Chelsea
15:00 Burnley - West Brom
17:30 Liverpool - Everton
20:00 Fulham - Sheffield Utd

ENGLAND: Sunnudagur
12:00 West Ham - Tottenham
14:00 Aston Villa - Leicester City
16:30 Arsenal - Manchester City
19:00 Manchester Utd - Newcastle
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner