Breiðablik vann sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum þetta árið er liðið lagði FH að velli, 1-0, á Kópavogsvelli í kvöld. Víkingar unnu þá KR, 1-0, í Víkinni og stefnir allt í spennandi lokaumferð í C-riðlinum.
Blikar höfðu tapað fyrstu tveimur leikjum sínum gegn Fylki og Þrótti, og sigurinn í kvöld því kærkominn.
Viktor Karl Einarsson skoraði sigurmark Blika á 78. mínútu leiksins, en Blikar eru áfram í 5. sæti í D-riðli A-deildar með 3 stig, einu stigi frá FH og ÍBV sem eru í 3. og 4. sæti með 4 stig.
Íslandsmeistarar Víkings eru komnir aftur á sigurbraut eftir að hafa unnið 1-0 sigur á KR í Víkinni.
Sveinn Gísli Þorkelsson skoraði eina mark leiksins á 74. mínútu.
Víkingar töpuðu stigum í síðustu tveimur leikjum en eru nú komnir með sjö stig og upp að hlið KR á toppnum þegar liðin eiga einn leik eftir í C-riðlinum. KR er hins vegar með töluvert betri markatölu en Víkingar.
Víkingar mæta ÍR í lokaumferðinni á meðan KR spilar við Njarðvík.
Úrslit kvöldsins:
Víkingur R. 1 - 0 KR
1-0 Sveinn Gísli Þorkelsson ('74 )
Breiðablik 1 - 0 FH
1-0 Viktor Karl Einarsson ('78 )
Stöðutaflan
Ísland
Lengjubikar karla
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Stöðutaflan
Ísland
Lengjubikar karla
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Athugasemdir





