Fotbolti.net
19.05.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía í dag - Tveir stórleikir sýndir samtímis

Ítalía í dag - Tveir stórleikir sýndir samtímis
Canon

Mynd: Getty Images

Það er enn mikil spenna bæði í Evrópu- og fallbaráttunni í ítalska boltanum og eru mikilvægir leikir á dagskrá í dag.
Fyrsti leikur dagsins er viðureign Chievo og Sampdoria. Sá leikur verður sýndur beint hér á landi en hvorugt lið er að spila upp á sæti. Chievo er löngu fallið og Sampdoria mun enda í 9. sæti sama hvað gerist.

Eftir hádegi er hörkuleikur í Empólí þegar Torino kíkir í heimsókn. Heimamenn í Empoli eru búnir að vinna tvo leiki í röð og myndi þriðji sigurinn fara langleiðina með að bjarga þeim frá falli.

Torino er aftur á móti í sjöunda sæti, tveimur stigum frá Evrópudeildinni og fimm stigum frá Meistaradeild.

Parma og Fiorentina eigast einnig við í fallbaráttunni. Gestirnir frá Flórens hafa ekki unnið keppnisleik í fótbolta síðan 17. febrúar og eru fimm stigum frá falli. Parma er tveimur stigum neðar.

AC Milan getur þá haldið Meistaradeildarvonum sínum á lífi með sigri á heimavelli gegn föllnu liði Frosinone.

Síðustu leikir dagsins eru jafnframt stórleikirnir. Juventus fær tækifæri til að hefna sín á Atalanta eftir viðureign liðanna í útsláttarkeppni bikarsins. Atalanta hafði betur 0-3 á Allianz Stadium og þarf annan sigur í dag í Meistaradeildarbaráttunni.

Napoli fær þá Inter í heimsókn og getur skotið þeim skelk í bringu í Evrópubaráttunni. Napoli er öruggt í öðru sæti, tíu stigum á undan Inter sem gæti verið búið að missa þriðja sætið til Atalanta eftir leiki dagsins.

Leikir dagsins:
10:30 Chievo - Sampdoria (Stöð 2 Sport 2)
13:00 Empoli - Torino
13:00 Parma - Fiorentina
16:00 Milan - Frosinone (Stöð 2 Sport 4)
18:30 Juventus - Atalanta (Stöð 2 Sport 4)
18:30 Napoli - Inter (Stöð 2 Sport 3)
Ítalía í dag - Tveir stórleikir sýndir samtímis
Canon

Mynd: Getty Images

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter8+1322
2Lazio8+1122
3Roma8+1318
4Milan8+918
5Como8+717
6Frosinone8+414
7Juventus8+314
8Torino8+213
9Cagliari8-313
10Napoli8+311
11Atalanta8-110
12Lecce8-59
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Genoa8-77
17Udinese8-94
18Fiorentina8-104
19Parma8-104
20Venezia8-113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.