Fotbolti.net
19.05.19 - 20:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ítalía: Tvö Meistaradeildarsæti í boði í lokaumferðinni

Piatek skoraði fyrir AC Milan.

Piatek skoraði fyrir AC Milan.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan vann mikilvægan sigur á Frosinone í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Lærisveinar Gennaro Gattuso eru með einu stigi minna en Inter og Atalanta fyrir lokaumferðina. Baráttan um Meistaradeildarsæti er gríðarlega hörð.
Pólski framherjinn Krzysztof Piatek braut ísinn fyrir AC Milan á 57. mínútu og Suso skoraði annað markið á 66. mínútu. Þar við sat. Frosinone fékk tækifæri til að skora úr vítaspyrnu stuttu áður en Milan komst yfir. Donnarumma varði vítaspyrnuna.

Fyrir leikinn í dag var Piatek ekki búinn að skora í fimm leikjum í röð. Markið í dag var hans 22. í deildinni.


Atalanta sótti heim Ítalíumeistara Juventus í síðasta heimaleik Massimiliano Allegri, stjóra Juventus. Hann verður ekki stjóri Juventus á næsta tímabili.

Allegri fékk ekki sigur í kveðjugjöf því leikurinn endaði með jafntefli. Atalanta leiddi lengi vel eftir mark Josip Ilicic. Mario Mandzukic jafnaði þegar 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Juventus er fyrir löngu búið að tryggja sér meistaratitilinn en Atalanta er komið upp í þriðja sæti deildarinnar með 66 stig eins og Inter sem tapaði gegn Napoli.

Inter heimsótti Napoli og tapaði þar 4-1. Staðan var 1-0 í hálfleik eftir mark Piotr Zielinski. Í seinni hálfleiknum gekk Napoli frá leiknum og voru lokatölur 4-1. Mauro Icardi lagaði stöðuna aðeins fyrir Inter með marki úr vítaspyrnu.

Fyrir lokaumferðina eru Juventus og Napoli búin að tryggja sér Meistaradeildarsæti. Baráttan um hin tvö sætin er á milli Atalanta, Inter, AC Milan og Roma.

Í lokaumferðinni, sem er um næstu helgi, mun það einnig ráðast hvaða lið verður síðasta liðið til að falla. Frosinone og Chievo eru nú þegar fallin. Genoa er í fallsæti fyrir lokaumferðina.

Hér að neðan má sjá stigatöfluna í deildinni. Á Ítalíu eru það innbyrðis viðureignir sem skera úr um það ef lið eru jöfn að stigum.

Juventus 1 - 1 Atalanta
0-1 Josip Ilicic ('33 )
1-1 Mario Mandzukic ('80 )

Milan 2 - 0 Frosinone
0-0 Camillo Ciano ('50 , Misnotað víti)
1-0 Krzysztof Piatek ('57 )
2-0 Suso ('66 )

Napoli 4 - 1 Inter
1-0 Piotr Zielinski ('16 )
2-0 Dries Mertens ('61 )
3-0 Fabian Ruiz ('71 )
4-0 Fabian Ruiz ('78 )
4-1 Mauro Icardi ('81 , víti)

Hægt er að skoða önnur úrslit dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni með því að hérna
Atalanta gerði jafntefli við Juventus.

Atalanta gerði jafntefli við Juventus.

Canon

Mynd: Getty Images

Fabian Ruiz og Dries Mertens voru á skotskónum.

Fabian Ruiz og Dries Mertens voru á skotskónum.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Juventus2+56
1Inter38+5487
2Napoli38+2276
2Inter2+56
3Bologna2+14
3Roma38+2873
4Como38+3671
4Milan1+33
5Napoli1+23
5Milan38+1870
6Juventus38+2769
6Chievo1+13
7Atalanta38+1559
7Sampdoria1+13
8Bologna38+356
8Roma2-13
9Torino101
9Lazio38+154
10Udinese38-350
10Lazio101
11Sassuolo38-449
11Sassuolo101
12Parma38-1845
12Spal101
13Torino38-1945
13Genoa2-21
14Cagliari38-1343
14Udinese1-10
15Fiorentina38-942
15Atalanta1-10
16Genoa38-1041
16Benevento2-20
17Verona1-20
17Lecce38-2238
18Cagliari1-30
18Cremonese38-2534
19Crotone1-30
19Verona38-3621
20Pisa38-4518
20Fiorentina1-30
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.