Fotbolti.net
19.05.21 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið kvöldsins: Wijnaldum fær bandið

Byrjunarlið kvöldsins: Wijnaldum fær bandið
Canon

Mynd: Getty Images

Jóhann Berg Guðmundsson er á sínum stað í byrjunarliði Burnley sem tekur á móti glorhungruðum lærisveinum Jürgen Klopp frá Liverpool.
Jóhann Berg kemur inn fyrir Matej Vydra og er hann einn af tveimur sem koma inn í liðið eftir stórt tap gegn Leeds í síðustu umferð. Hinn er markvörðurinn Will Norris sem spilar sinn fyrsta úrvalsdeildarleik og sendir Bailey Peacock-Farrell á bekkinn.

Liverpool er óvænt í baráttu um Meistaradeildarsæti og þarf sigra í lokaumferðunum til að eiga möguleika.

Klopp gerir eina breytingu eftir dramatískan sigur gegn West Brom í síðustu umferð. Georginio Wijnaldum kemur inn á miðjuna fyrir Curtis Jones og tekur fyrirliðabandið.

Burnley: Norris, Lowton, Tarkowski, Mee, Taylor, Brownhill, Cork, Gudmundsson, Westwood, McNeil, Wood.
Varamenn: Peacock-Farrell, Barnes, Rodriguez, Pieters, Vydra, Nartey, Dunne, Richardson, Glennon.

Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Phillips, Williams, Robertson, Thiago, Fabinho, Wijnaldum, Salah, Firmino, Mane.
Varamenn: Adrian, Milner, Ox-Chamberlain, Jones, Tsimikas, Shaqiri, Origi, Williams, Koumetio.



Fallið lið West Brom tekur þá á móti West Ham sem er í Evrópubaráttu.

West Brom: Johnstone, Furlong, Bartley, Ajayi, Townsend, Yokuslu, Maitland-Niles, Gallagher, Pereira, Robson-Kanu, Phillips.
Varamenn: Button, Robinson, Diangana, Diagne, Peltier, O’Shea, Grant, Gardner-Hickman, King.

West Ham: Fabianski, Coufal, Dawson, Ogbonna, Cresswell, Soucek, Rice, Fornals, Lingard, Benrahma, Antonio.
Varamenn: Randolph, Balbuena, Yarmolenko, Noble, Bowen, Diop, Fredericks, Johnson, Odubeko.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.