Fotbolti.net
19.06.24 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Þrír verða í banni í undanúrslitum bikarsins

Þrír verða í banni í undanúrslitum bikarsins
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Aganefnd KSÍ fundaði í gær og þar voru þrír leikmenn úrskurðaðir í leikbann í Mjólkurbikarnum, þar sem tvær áminningar þarf til að fá leikbann.

KA fær Val í heimsókn í undanúrslitum og meistarar Víkings taka á móti Stjörnunni. Leikirnir eru skráðir á miðvikudaginn 3. júlí.
Tveir leikmenn KA taka út bann í undanúrslitum en það eru þeir Birgir Baldvinsson og Bjarni Aðalsteinsson.

Þá verður Guðmundur Baldvin Nökkvason, leikmaður Stjörnunnar, einnig í leikbanni í undanúrslitunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.