Crystal Palace tekur á móti Englandsmeisturum Manchester City í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Man City mætir til leiks í dag án miðvarða en John Stones er eini miðvörðurinn í hóp og byrjar á bekknum.
Miðjumennirnir Fernandinho og Rodrigo munu því spila sem miðverðir í dag og leysa það flókna hlutverk að passa uppá Wilfried Zaha og Jordan Ayew sem eru ansi hreyfanlegir framherjar.
Gabriel Jesus byrjar fremstur, með Sergio Agüero á bekknum, og þá eru bæði Bernardo og David Silva í byrjunarliðinu.
Crystal Palace: Hennessey, Ward, Tomkins, Cahill, Van Aanholt, Milivojevic, Kouyate, Schlupp, McArthur, Zaha, Ayew
Varamenn: Henderson, Dann, Riedewald, McCarthy, Townsend, Meyer, Benteke
Man City: Ederson, Cancelo, Fernandinho, Rodri, Mendy, Gundogan, D. Silva, De Bruyne, B. Silva, Sterling, Jesus
Varamenn: Bravo, Stones, Angelinho, Foden, Garcia, Mahrez, Aguero.
Athugasemdir